fimmtudagur | 09. september | 2010

Þú ert ekki skráður inn

Bóklegt einkaflugmannsnámskeið
Skólastofa Geirfugls

Einkaflugmannsnámskeiðið hefst Mánudaginn 20. september og er kennsluhátturinn sá að kennt er á kvöldin á virkum dögum milli 19 og 22 í 10 vikur og síðan að lokum tekin skólapróf. Kennslan fer fram í kennslustofu félagsins sem er sambyggð flugskýlinu og býður þannig uppá gott aðgengi að því sem tengist náminu og eykur þannig skilning nemenda. Námskeiðið kostar 164.000,- Námsgögn eru innifalin í verði.
Skráning fer fram hér: SKRÁNING

Skráð af GSM 07.09.2010

Múlakot 2010

Hin árlega flughátíð í Múlakoti við Fljótshlíð um Verslunarmannahelgina
Allir flugáhugamenn eru hvattir til að mæta!
Hinar ýmsar uppákomur verða um helgina.
TM lendingarkeppnin, flugvélar til sýnis,
karamellukast og leiktæki fyrir börnin.
Tjalds
... <MEIRA>

Skráð af GSM 27.07.2010
Flughátíð FMÍ, Hella 2010 (Liðinn atburður)

Um næstu helgi verður hin árlega flughátíð Flugmálafélagsins - Allt sem getur flogið. Allir flugáhugamenn allra flugsporta eru velkomnir. Öll flugsportin koma saman, fljúga saman og skemmta sér og fjölskyldum sínum.

Ókeypis tjaldstæði innan valla
... <MEIRA>

Skráð af GSM 08.07.2010
Aðalfundur

Aðalfundur Flugfélagsins Geirfugl ehf, verður haldinn í Fluggörðum 25, 101 Reykjavík, miðvikudaginn 07.07.2010, klukkan 20:00

Dagskrá í samræmi við 14. gr. samþykkta félagsins.

1. Stjórn félagsins skal skýra frá hag félagsins og rekstri þess á
... <MEIRA>

Skráð af GSM 28.06.2010
Einkaflugmannsnámskeið að hefjast
Skólastofa Geirfugls

Bóklegt einkaflugmannsnámskeið
Einkaflugmannsnámskeiðið hefst þann 17. maí og er kennsluhátturinn sá að kennt er á kvöldin á virkum dögum milli 18 og 22 í 8 vikur og síðan að lokum tekin skólapróf. Kennslan fer fram í kennslustofu félagsins s
... <MEIRA>

Skráð af GSM 10.05.2010

Flugfélagið Geirfugl
Flugfélagið Geirfugl ehf. er flugklúbbur sem leigir út flugvélar og kennir til einkaflugprófs.  Markmið klúbbsins er að efla einkaflug á Íslandi m.a. með því að tryggja félagsmönnum sínum greiðan aðgang að góðum flugvélum á góðu verði, bjóða uppá nýja kosti varðandi flugnám. Flugfélagið Geirfugl ehf er skráð einkahlutafélag hjá fyrirtækjaskrá frá árinu 1997.

Þeim sem hafa áhuga á því að fræðast meira um Flugfélagið Geirfugl ehf. er boðið að hafa samband með tölvupósti 
Flugfélagið hefur aðstöðu í flugskýli 25, á Reykjavíkurflugvelli.
Staðsetning í Google Earth
Sími: 511-5511 Fax: 562-6099 Farsími: 866-1578
Kennitala: 690597-2689

Hægt er að leggja inn umsókn á vefnum til að gerast meðlimur í Geirfugli.
Mynd úr myndasafni félagins
Smellið hér til þess
að skoða fleiri myndir
Vefsmiðir:
(c) 2001-2002 Snillingarnir fjórir